Mánudagur, 5. október 2009
Hættum að drekka kók
Við getum lagt okkar að mörkum við að stöðva sukkið og svínaríið hér á landi.
Vegna frétta af því að Vífilfell sé með hótanir við Nýja Kaupþing, eigum við öll að mynda samtök um að kaupa ekki vörur frá Vífilfelli.
Algjör óþarfi er að kaupa Pepsí í staðinn. Sleppum frekar þessum kostnaði og spörum.
Stöndum saman og sniðgöngum eftirfarandi:
Coca-Cola, Coca-Cola Light, Coca-Cola Zero, Diet Coke, Fanta, Fresca, Schweppes, Sprite, Sprite Zero, Aquarius, Powerade, Magic, Burn, Brazzi, Svali, Trópí, Toppur, Eðal Toppur, Berg Toppur, Ávaxta Toppur, Pure Icelandic, Provamel, Hámark, Soda Stream, Thule, Víking Gylltur, Viking Lite, Viking Lager, Viking Sterkur, Carlsberg, Jacobsen, Elephant, Corona Extra, Carlsberg Léttöl, Thule Léttöl, Viking Léttöl, Viking Maltöl.
(Sjá fjölda góðra athugasemda á eyjunni og hjá Agli.)
|
Vöruskipti hagstæð í 13 mánuði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:10 | Facebook
Tenglar
Mínir tenglar
BloggGáttir
Fjölmiðlar
- eyjan
- Rúv
- DV
- vísir
- Kryppa Jaðarfréttir - samsæriskenningar og ýmislegt fróðlegt
- Pressan, Ingi Hrafn
- Smugan
- AMX
- Bæjarins Besta
- Viðskiptablaðið
- Heimur
- Nei
- Skutull
- Bylgjan
- Skessuhorn
- Kringvarp Færeyja
- Yahoo Finance
- UPI.com
- guardian
- Herald Tribune
- Berlingske Tidende
- Dagblaðið Noregi
- Verdens Gang
- Aftenposten
- Press TV
- Vísindaþátturinn Vísindaþátturinn á Útvarpi Sögu
- The Daily Beast
Bloggarar
- Egill
- jónas
- Vald.org
- DoctorE Doktorinn eini og sanni
- Pennar á visir.is
- Jóhann Hauksson
- Lára Hanna
- Baldur McQueen
- Orkubloggið
- Dr. Gunni
- Guðmundur Gunnars
- Gauti B. Eggertsson
- Jón Helgi Egilsson
- Jón Baldvin Hannibalsson
- Ögmundur
- Þór Jóhannesson
- Þröstur Guðmundsson, um ál
- Marinó G. Njálsson
- Ívar Pálsson
- Max Keiser
- Marc Faber
- Gerald Celente
- Jim Rogers
- Ágúst H Bjarnason
- Orðið á götunni
- Hva ra frétta (skrípó)
- Svarthöfði
- Frjálshyggjufélagið
- Hannes Hólmsteinn
- Vilhjálmur Þorsteins
- Grímur Gíslason
- Gunnar Axel
- Andmenning
- Pétur Tyrfingsson
- Vídeóblogg Þorsteins
- Friðrik Skúla
- Hnakkus hinn Mikli
- Haraldur Har
- Kjartan Valgarðsson
- Stjörnufræðiblogg
- Sævar Finnbogason
Varðandi hrunið
- Skýrsla Jóns og Gylfa Zoega
- Hrunið og vonin, Vilhjálmur Bjarnason
- Tíðarandinn.is
- Myntkörfulánin Ágæt úttekt á lögmæti myntkörfulánanna
Eitt og annað
- Watch Movies
- Free movies online
- WolframAlpha leitarvél
- mp3 leitarvél
- Vitleysan
- Stjörnuskoðun á Youtube
- Natural Solutions Foundation
- Tilvitnanir
Mitt blogg um frjálshyggju
Bloggvinir
-
askja
-
fridabjarna
-
agny
-
gullvagninn
-
nimbus
-
saemi7
-
reykur
-
ragnar73
-
gudbjornj
-
arikuld
-
krisjons
-
heimssyn
-
hehau
-
joih
-
svarthamar
-
veravakandi
-
veffari
-
kreppukallinn
-
islandsfengur
-
thj41
-
bjorgvinholm
-
aslaugas
-
ingibs
-
gammon
-
maeglika
-
tbs
-
heidihelga
-
gustichef
-
malacai
-
manisvans
-
siggisig
-
iceberg
-
vilhjalmurarnason
-
halo
-
skessa
-
stefanjonsson
-
vefritid
-
duddi9
-
baldher
-
kreppan
-
gudmundsson
-
gislim3779
-
fannarh
-
kruttina
-
birgitta
-
nordurljos1
-
gattin
-
oliskula
-
neo
-
gudrunmagnea
-
gfs
-
fullvalda
-
professor
-
proletariat


Athugasemdir
sammála við í minni fjölskyldur kaupum frekar frá Agli skallagríms..
ég styð að vífilfell verið bara látið fara, tökum verksmiðjurnar og framleiðum t.d. vatn til útflutnings
og annað heilnæmt
Þorsteinn á að borga sínar skuldir eins og við hin
LOKUM VÍFILFELLI
Elisabet maack (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 10:24
Það virðist ekkert ætla að breytast í þessu þjóðfélagi.
Sama glæpaliðið mun stjórna hér öllum fyrirtækjum nema fólk taki sig saman um að sniðganga þessi fyrirtæki.
Sveinn hinn Ungi, 5.10.2009 kl. 10:33
Auðvitað.
Sigurður Þórðarson, 5.10.2009 kl. 10:36
Væri ekki rétt að bæta við nokkrum tegundum vöru og þjónustu eins og Toyota, Lyf og Heilsa, Síminn, Bónus, Hagkaup og fleiri sem eru að stela af íslenskri þjóð fyrirtækjum sem ættu að vera löngu komin í gjaldþrotaskipti.
Kjartan Sigurgeirsson, 5.10.2009 kl. 10:48
Sammála, sniðgöngum Vífilfell, já,og það sem svindlararnir eiga, eða þykjast eiga. Ekki fara í Bónus og Hagkaup, og við þurfum að kynna okkur hvað þeir eiga svindlarnir, og sniðganga það.
Vigdís Ágústsdóttir, 5.10.2009 kl. 10:49
tja..
Hvað myndum við fá út úr því. bara fleiri myndu missa vinnuna hjá þeim fyrirtækjum..
Sigurjón Páll Jónsson, 5.10.2009 kl. 10:59
Það má ekki gerast að sama liðið haldi áfram að níðast á þjóðinni.
Þeir virðast kunna endalausa klæki og komast hjá því að borga milljarða skuldir en halda samt fyrirtækjunum.
Eina ráð almennings er að sniðganga fyrirtækin.
Sveinn hinn Ungi, 5.10.2009 kl. 11:04
Sigurjón virðist vera þessi dæmigerði Íslendingur með minnimáttarkennd. Auðtivað minnkar markaðurinn ekkert við þetta, fólk mun einfaldlega flytjast til í starfi, ef til þess kemur. Einnig að starfsmannafjöldi er ekki nein heilög tala.
Þetta mun líka virka sem aðhald fyrir þessa eigendur. Þeir vita alveg leynt og ljóst að þeir komast upp með nánast hvað sem er, og vegna þess, þá gera þeir hvað sem er.
Þetta er bráðsnjöll hugmynd og persónulega ætla ég að reyna sniðganga Kók og annað sem kemur frá Vífilfelli, og öðrum þannig fyrirtækjum. Það er kominn tími til að neytendur fari að sýna hvað í þeim býr, og hætti að láta vaða yfir sig sýknt og heilagt.
Jóhannes (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 13:03
Það er ekki bara Vífilfell og Kók sem þarf að sniðganga. Hvað með Jón Ásgeir og öll hann fyrirtæki??
Kók hættir ekki að selja kók á Íslandi fyrir Þorstein. Það missir eingin atvinnu þó Þorsteinn missi kók
Jón Páll Haraldsson (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 16:28
Æ látið ekki svona, það næst aldrei samstaða um svona lagað á Íslandi, og ekki dettur mér í hug að hætta að drekka kók því það er langbesti gosdrykkurinn á markaðinum. Pepsí er bara sull og það hlýtur að vera varasamt að drekka pepsímax, það er einhver bannsett ólyfjan látin út í það. Kók er drykkurinn.
Baldur Hermannsson, 5.10.2009 kl. 17:09
Baldur,
Mig grunar að kók sé eina næringin sem þú hefur fengið í mjög langan tíma!!!
Jóhannes (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 17:20
Ef það næst samstaða um að fella Vífilfell, þá fer fólk að finna mátt samstöðunnar og auðmennirnir að óttast um sinn hag.
Í framhaldinu er hægt að taka fyrir næsta fórnarlamb og þannig koll af kolli.
Við þurfum að ganga frá þessum glæpamönnum áður en þeir ganga endanlega frá þjóðinni.
Sveinn hinn Ungi, 5.10.2009 kl. 17:26
Jóhannes, enga ósvífni hér, döðlukaka frúarinnar ásamt harðfiski og tebolla stendur alltaf fyrir sínu.
Baldur Hermannsson, 5.10.2009 kl. 17:27
Að sjálfsögðu.
Kveðja að norðan.
Arinbjörn Kúld, 5.10.2009 kl. 17:37
Baldur,
Eina ósvífnin kemur frá þér, og passaðu að fá ekki ræpu af döðlukökunni
Jóhannes (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 18:07
Jói ertu á barnsaldri? Við ræpu éturðu imodium og þá geturðu étið döðukökur að vild.
Baldur Hermannsson, 5.10.2009 kl. 18:11
Er þetta ekki dæmigert fyrir okkur? Finnum alltaf eitthvað til að karpa um, frekar en standa saman.
Sveinn hinn Ungi, 5.10.2009 kl. 18:14
Baldur,
Ég spyr á móti ert þú á barnsaldri? Ég hélt að það væru bara krakkar og unglingar, sem gætu ekki hugsað sér lífið án Coca-cola?
Sveinn,
Þetta er frábært hugmynd, og listinn þarna uppi er góður. Þó að netið sé ekki alltaf sniðugt til upplýsandi umræðna, þá tel ég þetta algjöra snilld. Varðandi Baldur þá tel ég að hann eigi nú eftir að sjá ljósið, ætli þetta séu ekki einhverjir stælar í stráknum!
Jóhannes (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 18:52
Auðvitað á fólk að hætta að kaupa kók, eða gosdrykki yfirleitt. Drekka vatn úr krananum. Hollara og mun ódýrara.
Jóhann (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 18:53
Jóhannes: ég held að Baldur Hermanns hafi gaman af því að æsa menn upp, sérstaklega vinstrimenn. Bloggið hans er yfirleitt eitt það líflegasta á netinu, held ég. Hann er góður penni sem gaman er að lesa. En skoðanir hans eru stundum svolítið út úr kú.
Sveinn hinn Ungi, 5.10.2009 kl. 19:06
Sveinn,
Já, það kemur mér ekki á óvart. Það er í lagi að skjóta á vinstri menn, þeir eiga það til að vera soldið pólitískt rétt hugsandi. Það er hins vegar allt of mikið af "hægri" mönnum, sem eru með það eina agenda að gera lítið úr vinstri mönnum, en koma með littlar til hugsjónir til borðsins, nema að skara eld að sinni köku, sorglegt en satt. Þetta er kannski einföldun, en svona hefur ástandið, því miður verið undanfarin ár. Hef ekki hugmynd um hvar þessi Baldur stendur þar.
Jóhannes (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 19:29
Verðum við ekki að hætta að blogga og lesa moggan líka. En annars ég styð þetta heilshugar ef Kók ætlar að kúga þjóðina svona þá drekk ég ekki frá vífifell framar og endilega búið til grúppu og ég joina það.
Áfram RC cola
Hjálmar Gunnar Guðbjörnsson, 5.10.2009 kl. 19:47
Jóhannes: Sammála hverju orði.
Hjálmar: ég er hættur að lesa Moggan. Það er helvíti svínslegt hjá þessum andskotum (eigendum moggans), að ætlast til þess að við lesum ruglandann frá manni, sem kom þjóðinni í nánast endanlegt gjaldþrot. Setti Seðlabankann í gjaldþrot sem kostar þjóðina 350 milljarða og studdi af hörku Icesave reikninga Kjartans Gunnarssonar.
Sveinn hinn Ungi, 5.10.2009 kl. 20:02
Góð auglýsing fyrir vífilfell...ha,ha
Guðrún (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 20:19
Sveinn,
Það er gaman að sjá að menn eru að sjá þetta líka, ég vona að fleiri geri það líka.
Varðandi kommentið frá guðrúnu, þá hefði maður trúað svona hugsunarhætti fyrir hrun, en núna í dag
, jæja....lítið hægt að segja við því. Annars held ég að ef það er eitthvað fyrirtæki á Íslandi sem þarfnast ekki auglýsingar(eða viðkynningu), þá er það Vífilfell!
Jóhannes (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 20:48
Med hönd á hjarta: Ég hef ekki drukkid gosdrykk ...hvada nafni sem hann nefnist...frá Vífilfelli í meira en áratug. Ég er ennthá lifandi eins og thid getid ímyndad ykkur annars gaetu thid ekki lesid thennan texta.
Mig minnir ad sídast hafi ég drukkid Malt Extrakt frá Agli Skallagrímssyni blöndudu med Appelsínu Límónadi frá sama framleidanda.
Yfirleitt drekk ég ekki gosdrykki enda er thetta sykurdrull óhollt ad mörgu leyti: fitandi og slaemt fyrir tannheilsuna.
Ég hef tekid sérstaklega ad íslendingar eru med ótharfa skvap á kroppnum og gaeti ástaedan fyrir thví verid óhófleg neysla á óhollum gosdrykkjum frá t.d. Vífilfelli.
Sodastream aetti ekki nokkur madur ad kaupa eda neyta. Ég sé ad thad er á lista yfir vörur Vífilfells...en ekki nóg med thad heldur graedir glaepa og mordingjaríkid Ísrael á allri sölu Sodastream.
Íslendingar eru heppnir ad hafa ótakmarkadan adgang ad sennilega besta drykkjarvatni í heimi. Fólk aetti ad notfaera sér thad vel. Thad er stutt í vatnskranann.
Í gódu formi (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 02:47
Pepsi4Life
Indriði (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 09:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.