Enn einn brotamaðurinn í þingflokki Sjálfstæðismanna. Líklegt að þingflokksfundir verið í framtíðinni haldnir að Kvíabryggju.

Nú hefur enn einn brotamaðurinn verið afhjúpaður innan þingflokks Sjálfstæðismanna.

Tryggvi Þór Herbertsson lánaði sjálfum sér í gegn um einkahlutafélag sitt Varnagla ehf. Menn komast ekki fram hjá lögunum með því að hafa lánastarfsemi sem einn af tilgangi félagsins, því eins og Tryggvi benti sjálfur á, þá er lánastarfsemi skráð sem einn að tilgangi flestra félaga. Lögin væru því marklaus ef svona auðvelt væri að komast fram hjá þeim.

Að því leiti er Tryggvi ómerkilegri en Ásbjörn Óttarsson, að hann reynir að réttlæta þennan ólögmæta gjörning og segir hann lögmætan.

Líklegt má telja, að framtíðar fundarstaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins sé að Kvíabryggju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svipurinn á manninum í kassanum í kvöld.. eins og hann stæði í miðri skítahrúgu. .. afsakanir hans voru hlægilegar... og aumingjalegar með afbrigðum.

DoctorE (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 20:45

2 Smámynd: Sveinn hinn Ungi

Það er rétt, hann leit hræðilega út greyið.

Sveinn hinn Ungi, 5.2.2010 kl. 20:52

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Hvernig verður með Össur og Árna Þór.?

Ragnar Gunnlaugsson, 5.2.2010 kl. 21:35

4 Smámynd: Sveinn hinn Ungi

Held að þar hafi ekki verið um lögbrot að ræða.

Aftur á móti voru þessi viðskipti með "hlutabréf" sparisjóðanna (stofnbréf) ansi undarleg frá siðferðislegu sjónarmiði. Þar tóku margir þátt, t.d. Davíð og Geir Haarde.

Ég erfði ásamt systkinum mínum, stofnbréf í Sparisjóði Vélstjóra sem við seldum á 10 milljónir. Nokkru síðar hitti ég gamlan skólabróðir sem sagðist einnig hafa erft stofnbréf í Sparisjóði Vélstjóra. Hann sagði að verðmæti bréfsins væri 90 milljónir. Ekki er hægt að álasta mönnum fyrir að innleysa slíkan hagnað.

Lagaumgjörðin var sérhönnuð af Pétri Blöndal, sem notaði tækifærin til að stórgræða sjálfur.

Sveinn hinn Ungi, 5.2.2010 kl. 21:46

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er margt í pokanum sem eftir er að koma í ljós. Siðferðisvitundin er orðin ansi sveigð og það er einmitt þessi sveigja sem taka mun einhvern tíma að ná til baka. Fólki finnst allt í lagi að fara á svig við þessa og hina lagagreinina vegna þess að það gera það svo margir.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.2.2010 kl. 22:28

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hólmfríður mín. Siðferðiskenndin er ekki sveigð, hún er að mestu í bókum núna og svo auðvitað í umtali samfélagsins. Þetta nauðsynlega varnartæki mannlegs umhverfis var tortímt og í staðinn kom siðferðislegt úrkynjunartímabil.

Siðlaust, gráðugt, grimmt og heimskt.

Árni Gunnarsson, 6.2.2010 kl. 01:27

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

Afsakið. Þessu nauðsynlega.....

Árni Gunnarsson, 6.2.2010 kl. 01:28

8 identicon

http://www.jonas.is:

03.02.2010
„Bjarni segir ekki af sér
DV hefur upplýst í mörgum fréttum, að formaður hrunflokksins er viðriðinn milljarðabrask með Sjóvá. Gaf sjálfum sér umboð í BNT til að veðsetja hlutabréf í Vafningi, sem tengist Tortola. Blaðið birtir í dag myndir af skjölum, sem sýna, að Bjarni Benediktsson hefur logið um afskiptaleysi sitt. Málið er hluti af stóra svindlinu, þegar bótasjóði Sjóvá var stolið. Ríkið hljóp undir bagga með milljörðum frá skattgreiðendum. Aðrir fjölmiðlar hafa ekki tekið á þessu. Nema Eyjan.is. Sýnir eymd fjölmiðlunar hér. Í öðrum vestrænum löndum væri Bjarni búinn að láta af formennsku og þingmennsku.“

X – D?

Krummi (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 02:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Sveinn hinn Ungi
Sveinn hinn Ungi

"Við höfum gleymt að vera, að vera kyrr, að vera það sem við erum í raun, að vera þar sem lífið er, Hér og Nú." (Tolle)

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband