Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ef þjóðin er svona heimsk

Ef það er svo, að 40% þjóðarinnar er svo heimsk að vilja fá glæpamennina aftur til að stjórna landinu, þá einfaldlega á hún ekki betra skilið.

Ég trúi því varla að svo sé, en vel má vera að fagurgalinn og lyginn frá þessu liði hljómi betur en raunveruleikinn. Vissulega er margir í vandræðum þessa daganna, en vandræðin stafa af stjórnun íhaldsins hér á landi í áratugi.

Flestir flýja til Norðurlandanna þessi misserin, þar sem tekist hefur að byggja upp hið norræna velferðarmódel. Þar gengur vel, þar hefur kreppan haft lítil áhrif. Þetta er það módel sem núverandi stjórnvöld vilja koma á hér á landi. Flestir sjá að það er besta módelið, en vilja frekar fá Bandaríska módelið, sem engan veginn gengur vel. Blanda það við spillingu og glæpamennsku íhaldsins.


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn með 40,3% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eiga þoturnar að fljúga?

Almennt séð er maður ekki hrifin af hernaðarbrölti, jafnvel þó aðeins sé um æfingar að ræða. Þess vegna er ég frekar á móti þessum hugmyndum um að staðsetja hér herþotur til heræfinga.

Það sem ég hef samt mestar áhyggjur af, er hvar þessar þotur eiga að fljúga.

Verður enginn friður á hálendinu fyrir þessu? Eða verður þetta fljúgandi yfir hafsvæðið, sjómönnum og hvalaskoðendum til armæðu?


Skýrslan komin í prentun

Það er verið að segja mér, að skýrsla Rannsóknarnefndarinnar sé komin í prentun.

Það er sagt vera gert undir lögreglueftirliti hjá prentsmiðju Odda.

Hlýtur því að vera von á skýrslunni allra næstu daga.


Góður pistill hjá Bubba

Mér finnst Bubbi hafa vaxið gríðarlega sem listamaður eftir hrunið. Nú er hann aftur orðinn ekta. Þvílíkt flottur blús sem ég heyrði hann spila í jólaösinni 2008, "i'm on the bottom, i've been there before", þarna náði maður tengingu við snillinginn.

Einnig eru útvarpsþættir hans alveg meiriháttar.

Nú skrifar Bubbi hörku góðan pistil á Pressuna, þar sem hann hraunar yfir Dabba.

Það er líklega rétt hjá Bubba, að Dabbi hafi keyrt Glitni í þrot af tómum hefndarþorsta. Hitt er annað, að ekki kom til greina að láta bankana hafa meira fé. Seðlabankinn hafði á þessum tíma látið bankana hafa 520 milljarða. Af því töpuðust 345 milljarðar. Þetta er mesta högg sem þjóðin hefur nokkru sinni orðið fyrir. Þeir klikkuðu á því að taka veð fyrir lánunum.

Í þessu máli var það hefndarþorsti Dabba sem bjargaði okkur. Hann neitaði sem betur fer að lána Glitni meira fé. Annars værum við í svipaðri stöðu og Írar, sem hafa gengið í ábyrgðir fyrir sína banka og skulda nú yfir 1.000% af landsframleiðslu.


Ríkisstjórnin sýnir styrk

Ríkisstjórnin sýnir styrk með því að láta í ljós, að tekið verði á verkfalli flugumferðarstjóra. Þeir verða ekki látnir komast upp með það á þessum viðkvæmu tímum, að setja hér allt í uppnám.

Margir virðast ekki gera sér grein fyrir því hversu alvarleg staða er komin upp hjá okkur, enda er ríkinu haldið gangandi með lántökum, til að milda höggið. Staðan er því enn ekki orðin augljós. 

Við þurfum á öllu okkar að halda og megum ekki eyða orkunni í innbyrðis átök.

En því miður hefur allt logað í átökum á þinginu. Nú þarf stjórnarandstaðan að fara að gefa stjórninni vinnufrið. Miklir erfiðleikar eru framundan, því yfir 100 milljarða hallarekstur er á ríkinu. Þetta er u.þ.b. eitt IceSave mál á ári. Þriðja hver króna sem ríkið eyðir er tekin að láni. 

Framundan er skattlagning og niðurskurður af áður óþekktri stærðargráðu, en þetta virðast margir ekki fatta og standa í illdeilum alla daga.


mbl.is Gagnrýna inngrip hins opinbera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiðsluskyldan var viðurkennd af öllum flokkum

Enn einu sinni reynir stjórnarandstaðan að rugla almenning í rýminu. Enn skal því haldið fram, að okkur beri ekki að greiða neitt af Icesave.

Þetta sýnir betur en margt annað tækifærismennskuna og ómerkilegheitin í þeim Bjarna Ben og Sigmundi Davíð.

Samningalota undir forystu Lee Buchheit stendur enn yfir þar sem allir flokkar á þingi stóðu saman að samningsmarkmiðum. Markmiðum samninganna var lekið á Wikileaks.org. Þar kemur skýrt fram að Íslendingar viðurkenna greiðsluskylduna, þrátt fyrir lagalega óvissu um ýmis atriði: 

Key Points

In summary, and leaving aside the question of Iceland´s legal obligation in this matter, this is what Iceland proposes:

•Iceland will ensure that the full amount expended by the United Kingdom and the Netherlands to pay Icesave depositors in each of those countries (up to the EUR 20,887 minimum provided for in accordance with the EU Deposit Guarantee Scheme) is recovered by the Governments of those two countries.

•Iceland will, in addition, reimburse the United Kingdom and the Netherlands for the reasonable time value of the funds expended for this purpose until recovered by those Governments.

Ekkert er því annað í spilunum en ljúka þessu máli sem fyrst, með sem hagstæðustum kjörum fyrir okkur íslendinga.


mbl.is Moody's: Gæti tafið samning um eitt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægast að halda hættulegum stjórnmálamönnum frá stjórnartaumunum

Stjórnarandstaðan sækir það stíft að komast í ríkisstjórn. Standa þarf vörð um að það gerist ekki.

Herramennirnir Bjarni Ben og Sigmundur Davíð eru afar vafasamir og jafnvel hættulegir þjóðinni. Feður þeirra beggja eru innviklaðir í gjörninga sem tengjast hruninu. Bjarni Ben átti sinn þátt í að heilum tryggingasjóði var rænt. Báðir snúast þeir eins og vindhanar í öllum málum, nema í hagsmunamálum auðhringa eins og LÍÚ, þar eru þeir einarðir gegn þjóðinni.

Þó svo að hægt gangi að ná tökum á hinu erfiða ástandi sem skapast hefur í kjölfar hrunsins, verður að sýna ríkisstjórninni þolinmæði. Eitt er víst, þau eru að gera allt það besta sem mögulegt er í stöðunni hverju sinni.

En mikilvægast að halda hættulegum stjórnmálamönnum frá stjórnartaumunum. Víst er að þeir muni reyna að hafa áhrif á rannsóknir og dóma sem framundan eru.

Þess vegna mega hinir skuggalegu herramenn ekki undir nokkrum kringumstæðum komast aftur til valda.


mbl.is Úrslit í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einfalt að keyra auðmennina í gjaldþrot

Fréttablaðið segir frá því í dag, að þeir starfsmenn gamla Kaupþings sem fengu persónulegar ábyrgðir af lánum felldar niður, þurfi allir að greiða skatt af niðurfellingunni. Engu skiptir þótt skuldin hafi verið í einkahlutafélagi. Litið er á niðurfellingu skulda sem laun, jafnvel þó um skuldir einkahlutafélags sé að ræða.

Með því að setja lög, sem skylda fjármálastofnanir til að fella niður skuldir einkahlutafélaga sem ekki verða greiddar, er hægt að knýja auðmennina til að greiða skatt af því fjármagni sem þeir fengu lánað í sín einkahlutafélög. Í flestum tilfellum er skatturinn svo hár að auðmaðurinn yrði gjaldþrota.

Dæmi:

Fons, félag Pálma Haraldssonar, var úrskurðað gjaldþrota í fyrra og námu skuldirnar 40 milljörðum. Pálmi þarf engar áhyggjur að hafa, þar sem skuldirnar gufa upp með gjaldþrotinu og enga skatta þarf að greiða.

Ef skuldirnar hefðu verið felldar niður frekar en keyra fyrirtækið í gjaldþrot, þyrfti Pálmi að greiða skatt af þessum 40 milljörðum. Hann þyrfti því að greiða 14 milljarða eða fara í persónulegt gjaldþrot ella.


mbl.is ASÍ skoðar vinnulag bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rýrð kastað á Elton John

Síðan auðmaður nokkur pantaði Elton John í afmælið sitt, hefur verið vinsælt að kasta rýrð á Elton og segja hann lélegan tónlistarmann eða að segja að auðmaðurinn hafi lélegan tónlistarsmekk.

Ég held að mörgum yfirsjáist að bestu plöturnar gaf Elton út á árunum 1971 til 1975.

Persónulega held ég mest upp á Tumbleweed Connection sem hann gaf út árið 1971 og var með hans fyrstu plötum. Ég get satt að segja hlustað endalaust á þessa plötu.

Síðar fór hann að gefa út hálf gerilsneytt vinsældarpopp, þar sem laglínur eru reyndar ansi góðar en eitthvað var þetta orðið útþynnt hjá honum, en vinsældirnar jukust jafnt og þétt þrátt fyrir það.

Amazon.com gefur upp þennan lista yfir bestu plötur Eltons:

 Goodbye Yellow Brick Road 1. Goodbye Yellow Brick Road.

Captain Fantastic and the Brown Dirt Cowboy 2. Captain Fantastic and the Brown Dirt Cowboy.

Tumbleweed Connection3. Tumbleweed Connection.

4.  Madman Across the Water by Elton John

5.  Elton John by Elton John

Það er óþarfi að kasta rýrð á þennan snilling!

Hægt er að hlusta á Tumbleweed Connection á youtube, þetta lag er t.d. í miklu uppáhaldi hjá mér:

 

ATH

 

Hægt er að downloada youtube lög sem mp3 skrár.

Mér hefur gengið ágætlega að nota flvto.com. Ekki þarf að gefa upp netfang, heldur er skráin vistuð beint, í þriðja þrepinu.

 


Betur hefur spilast úr þröngri stöðu en á horfðist

Tíminn hefur unnið með okkur í Icesave deilunni.

Ljóst er að nú bjóðast okkur betri samningar en áður voru í boði. Hinn harðsnúni samningamaður Lee C. Buchheit er eflaust að skila sínu, auk þess sem Bretar viðast óttast þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Úr vöndu var að ráða, þar sem Árni Matt, Davíð Oddsson og Geir Harði höfðu skrifað undir loforð um að íslendingar borguðu Icesave innistæðutrygginguna, ásamt því að Bjarni Ben flutti þingsályktun um að ganga frá samningum.

Í trausti þessara undirskrifta og loforða borguðu Bretar og Hollendingar út innistæðurnar. Þeir gerðu sér ekki grein fyrir því að íslenskir stjórnmálamenn eru upp til hópa ómerkilegir glæpamenn sem ekkert er að marka. Því sitja þeir í súpunni núna, við neitum að borga það sem okkar ráðamenn höfðu lofað.

Hlutverk samningamannanna hefur verið að vinda ofan af mistökunum sem gerð voru á fyrstu stigum.


mbl.is Bretar vilja ræða málin áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Sveinn hinn Ungi
Sveinn hinn Ungi

"Við höfum gleymt að vera, að vera kyrr, að vera það sem við erum í raun, að vera þar sem lífið er, Hér og Nú." (Tolle)

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband