Þriðjudagur, 9. febrúar 2010
Traust og góð rannsóknarnefnd
Ég hef þá trú að rannsóknarnefnd Alþingis sé afskaplega vel mönnuð og eigi eftir að skila góðu starfi. Það er algjör óþarfi að níða niður þessa nefnd, fyrir það eitt að seinkun hafi orðið á skýrslunni. Þar hljóta að hafa verið gildar ástæður, enda verkið afar umfangsmikið.
Það sem þeir hafa sjálfir sagt um efni skýrslunnar, gefur til kynna að ýmislegt bitastætt verði í skýrslunni og að ekki verði um neinn kattarþvott að ræða. Það þjónar eingöngu hagsmunum þeirra, sem brugðust við landsstjórnina, að nefndin og hennar störf séu töluð niður.
|
Senda út athugasemdabréf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 6. febrúar 2010
Ekki til vinsælda fallið að setja Sóleyju Tómasdóttur í 1. sætið
Sóley Tómasdóttir er eflaust ágætis manneskja, en hún stendur bara fyrir eitt málefni. Hún svo öfgafull í þessu eina málefni, að hún fælir fólk hreinlega frá VG.
Valið mun því líklega standa milli Samfylkingar eða Besta flokksins í vor.
Reyndar er mögulegt að Frjálslyndi flokkurinn komi með framboð og/eða Ólafur F. Magnússon. Ólafur er í mörgum málefnum með afskaplega góða stefnu, sérstaklega varðandi húsfriðun. Persónulega vil ég friða allt 101 svæðið.
Númer eitt er að íhaldið bíði afhroð. Það eiga þeir skilið.
|
Góð uppskrift að kosningasigri í vor |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 6. febrúar 2010
Dónaskapur hjá Vigdísi Hauksdóttur
Vigdís Hauksdóttir er að sjálfsögðu á þingi fyrir hinn ömurlega spillingar- og sukkflokk, Framsóknarflokkinn.
Hún líkir forsætisráðherra við einræðisherra. Það verður að teljast einstakur dónaskapur.
Hvernig væri að mynnast þess, að það þurfti að grátbiðja Jóhönnu Sigurðardóttur um að taka við forsætisráðherraembættinu.
Það er ekki beinlínis háttur einræðisherra, að láta ganga á eftir sér til að taka við völdum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 6. febrúar 2010
Listakona frá Úkraínu túlkar hernámið
Kseniya Simonova vann keppnina Ukraine's got talent með listrænum gjörningi.
Um er að ræða listaverk sem hún mótar með sandi á glerplötu.
Í þessu tilfelli segir hún sögu hernáms Úkraínu á stríðsárunum.
Föstudagur, 5. febrúar 2010
Enn einn brotamaðurinn í þingflokki Sjálfstæðismanna. Líklegt að þingflokksfundir verið í framtíðinni haldnir að Kvíabryggju.
Nú hefur enn einn brotamaðurinn verið afhjúpaður innan þingflokks Sjálfstæðismanna.
Tryggvi Þór Herbertsson lánaði sjálfum sér í gegn um einkahlutafélag sitt Varnagla ehf. Menn komast ekki fram hjá lögunum með því að hafa lánastarfsemi sem einn af tilgangi félagsins, því eins og Tryggvi benti sjálfur á, þá er lánastarfsemi skráð sem einn að tilgangi flestra félaga. Lögin væru því marklaus ef svona auðvelt væri að komast fram hjá þeim.
Að því leiti er Tryggvi ómerkilegri en Ásbjörn Óttarsson, að hann reynir að réttlæta þennan ólögmæta gjörning og segir hann lögmætan.
Líklegt má telja, að framtíðar fundarstaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins sé að Kvíabryggju.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 3. febrúar 2010
Réðu kúludrottningu yfir Bankasýslu ríkisins
Hvernig datt þeim í hug að ráða kúludrottningu yfir Bankasýslu ríkisins?
Það var margt afbragðs fólk í boði, til dæmis Vilhjálmur Bjarnason.
Af hverju er hann alltaf hunsaður?
Þessir sóttu um: Birgir Örn Gunnarsson, Conor Byrne, Elín Jónsdóttir, Gísli Jafetsson, Guðmundur Franklín Jónsson, Halldór Eiríkur S. Jónhildarson, Ingólfur Guðmundsson, Ingólfur V. Guðmundsson, Íris Björk Pétursdóttir, Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, Jóhannes Ágústsson, Már Wolfgang Mixa, Ólafur Örn Ingólfsson, Viðar Kárason, Vilhjálmur Bjarnason.
Ég held að manneskjan hafi engan trúverðugleika. Hún er með risakúlulán upp á 125 milljónir sem lendir á þjóðinni að borga.
Þegar ég heyri fréttir af Bankasýslu ríkisins, þá heyri ég ekki fréttina, því þessi staðreynd er svo truflandi.
Ef hún á að halda þarna áfram, þá skal hún borga þetta kúlulán sitt. Annað gengur ekki.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 1. febrúar 2010
Hafið þér talað við kommúnista?
Það er vissulega svolítið gaman af því, hvernig allt hefur snúist á hvolf á aðeins rúmu ári.
Nú er fyrrverandi ríkissaksóknara stillt upp, nánast eins og glæpamanni.
Sjálfur hef ég alltaf haft hálfgerða skömm á þessu framapotsliði, þannig að maður grætur það ekki beinlínis hvernig komið er fyrir sumum.
Hitt er annað, að þetta getur gengið of langt og orðið nánast að ofsóknum í anda McCarthy.
Ég á til dæmis frekar erfitt með að fella áfellisdóm yfir Boga Nilssyni, enda var hann hættur störfum þegar hann þáði boð um utanferð með sonum sýnum í einkaþotu.
Hver er eiginlega glæpurinn?
Aftur á móti hefur verið sérlega gagnrýnivert, að æðstu embættismenn landsins hafa gegn um tíðina verið innmúraðir í íhaldsklíkuna.
|
Bogi meðal farþega í einkaþotum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.2.2010 kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 31. janúar 2010
Bíll sem gengur fyrir lofti
Hvenær fær maður sér vindmyllu á þakið á húsinu, sem maður notar til að framleiða þrýstiloft á kúta?
Síðan setur maður þrýstiloftið á bílinn og keyrir frítt.
Fimmtudagur, 28. janúar 2010
Bjarna Ben er fjarstýrt
Bjarna Ben er fjarstýrt úr Hádegismóum.
Það sést á því að nú hefur hann tekið enn einn snúninginn í Icesave málinu samkvæmt fyrirmælum Hádegismóastjórans.
Fyrst var hann á móti dómstólaleið og sagði: "Ég held að það sé afskaplega mikil einföldun á þessu máli öllu saman að telja það í raun og veru að það hafi verið valkostur fyrir íslensk stjórnvöld að standa stíf á lögfræðilegri túlkun og halda henni til streitu, jafnvel fyrir dómstólum, hvort sem það væri á alþjóðlegum vettvangi eða hér heima fyrir íslenskum dómstólum."
Þá vildi hann fara samningaleið.
Síðan vildi hann fara dómstólaleiðina.
Svo vildi hann halda þjóðaratkvæðagreiðslu.
En þegar forsetinn synjaði lögunum staðfestingar var hann á móti þjóðaratkvæðagreiðslu en vildi fara samningaleið.
Nú vill hann allt í einu fara dómstólaleiðina. Það stemmir við boðskapinn frá Hádegismóum, samanber grein Jóns Steinars og Sigurðar Líndal.
Alveg er ég handviss um, að nú er síminn rauðglóandi til Bjarna og honum fyrirskipað að gefa ekkert eftir. Það er lífsspursmál fyrir niðurrifsöflin að viðhalda Icesave smjörklípunni.
|
Utan til funda vegna Icesave |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 27. janúar 2010
Ríkisstjórnin setji bráðabirgðalög um nýjan Icesave samning
Stjórnarandstaðan gerir ekkert annað en þvælast fyrir í Icesave málinu og öðrum málum. Þau hafa haft ríkisstjórnina og þingið í gíslingu í næstum ár.
Nú er neyðarástand og ekki hægt að umbera þetta háttarlag stjórnarandstöðunnar öllu lengur.
Ríkisstjórnin þarf taka málin í sínar hendur og stjórna af röggsemi með bráðabirgðalögum meðan þingið er í fríi.
Afturkalla þarf lögin sem forsetinn synjaði. Ná samningi við Breta og Hollendinga um betri vaxtaprósentu og annað sem þeir eru til í að koma til móts við okkur með.
Setja þarf bráðabirgðalög um nýjan Icesave samning og freista þess að forsetinn skrifi undir.
Gangi þetta ekki eftir, getur ríkisstjórnin sagt af sér með fullum sóma og boðað til nýrra kosninga.
|
Til í að fresta skýrslunni fram yfir kosningar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Tenglar
Mínir tenglar
BloggGáttir
Fjölmiðlar
- eyjan
- Rúv
- DV
- vísir
- Kryppa Jaðarfréttir - samsæriskenningar og ýmislegt fróðlegt
- Pressan, Ingi Hrafn
- Smugan
- AMX
- Bæjarins Besta
- Viðskiptablaðið
- Heimur
- Nei
- Skutull
- Bylgjan
- Skessuhorn
- Kringvarp Færeyja
- Yahoo Finance
- UPI.com
- guardian
- Herald Tribune
- Berlingske Tidende
- Dagblaðið Noregi
- Verdens Gang
- Aftenposten
- Press TV
- Vísindaþátturinn Vísindaþátturinn á Útvarpi Sögu
- The Daily Beast
Bloggarar
- Egill
- jónas
- Vald.org
- DoctorE Doktorinn eini og sanni
- Pennar á visir.is
- Jóhann Hauksson
- Lára Hanna
- Baldur McQueen
- Orkubloggið
- Dr. Gunni
- Guðmundur Gunnars
- Gauti B. Eggertsson
- Jón Helgi Egilsson
- Jón Baldvin Hannibalsson
- Ögmundur
- Þór Jóhannesson
- Þröstur Guðmundsson, um ál
- Marinó G. Njálsson
- Ívar Pálsson
- Max Keiser
- Marc Faber
- Gerald Celente
- Jim Rogers
- Ágúst H Bjarnason
- Orðið á götunni
- Hva ra frétta (skrípó)
- Svarthöfði
- Frjálshyggjufélagið
- Hannes Hólmsteinn
- Vilhjálmur Þorsteins
- Grímur Gíslason
- Gunnar Axel
- Andmenning
- Pétur Tyrfingsson
- Vídeóblogg Þorsteins
- Friðrik Skúla
- Hnakkus hinn Mikli
- Haraldur Har
- Kjartan Valgarðsson
- Stjörnufræðiblogg
- Sævar Finnbogason
Varðandi hrunið
- Skýrsla Jóns og Gylfa Zoega
- Hrunið og vonin, Vilhjálmur Bjarnason
- Tíðarandinn.is
- Myntkörfulánin Ágæt úttekt á lögmæti myntkörfulánanna
Eitt og annað
- Watch Movies
- Free movies online
- WolframAlpha leitarvél
- mp3 leitarvél
- Vitleysan
- Stjörnuskoðun á Youtube
- Natural Solutions Foundation
- Tilvitnanir
Mitt blogg um frjálshyggju
Bloggvinir
-
askja
-
fridabjarna
-
agny
-
gullvagninn
-
nimbus
-
saemi7
-
reykur
-
ragnar73
-
gudbjornj
-
arikuld
-
krisjons
-
heimssyn
-
hehau
-
joih
-
svarthamar
-
veravakandi
-
veffari
-
kreppukallinn
-
islandsfengur
-
thj41
-
bjorgvinholm
-
aslaugas
-
ingibs
-
gammon
-
maeglika
-
tbs
-
heidihelga
-
gustichef
-
malacai
-
manisvans
-
siggisig
-
iceberg
-
vilhjalmurarnason
-
halo
-
skessa
-
stefanjonsson
-
vefritid
-
duddi9
-
baldher
-
kreppan
-
gudmundsson
-
gislim3779
-
fannarh
-
kruttina
-
birgitta
-
nordurljos1
-
gattin
-
oliskula
-
neo
-
gudrunmagnea
-
eiginkonan
-
gfs
-
fullvalda
-
professor
-
proletariat

